Fyrsta viðtal

Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar í gegnum Noona, með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.

Sérfræðilæknar Livio

Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.

Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.

Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.


Hvað felst í fyrsta viðtalinu?

Í fyrsta viðtalinu er farið yfir heilsufar, fyrri sjúkrasögu og aðra þætti sem geta haft áhrif á frjósemi. Oftast er framkvæmd kvenskoðun með ómskoðun um leggöng þar sem læknirinn metur leg, legslímhúð og eggjastokka.

Í framhaldinu eru gerðar viðeigandi blóðrannsóknir og, ef við á, sæðisrannsókn.

Á grundvelli heilsufarssögu og niðurstaðna rannsókna leggur læknirinn mat á frjósemi, metur hvort þörf sé á frekari rannsóknum og ræðir hvernig best sé að haga næstu skrefum.

Við hvetjum þig til að koma vel undirbúin(n) í viðtalið og spyrja allra þeirra spurninga sem kunna að vakna. Ef einhver óvissa er enn til staðar eftir viðtalið er ávallt velkomið að hafa samband við okkur.

Vinsamlegast athugið: Samkvæmt lögum um tæknifrjóvgun þurfa pör sem fara í tæknifrjóvgun að vera í skráðri sambúð eða gift. Hjúskaparstöðu og skráningu sambúðar er hægt að uppfæra hjá Þjóðskrá Íslands.